Saga eftirlifenda III: Níðhöggur (Icelandic Edition)
Emil Hjörvar PetersenNíðhöggur er þriðja og síðasta bókin í þríleiknum Saga eftirlifenda. Þessi stórbrotna og spennandi saga segir frá ásunum sem lifðu af Ragnarök og baráttu þeirra í heimi sem þeir misstu tökin á.
Í umfangsmiklum lokahluta þríleiksins er ögurstundin ávallt yfirvofandi. Æsirnir horfast í augu við fortíð sína og framtíð, uppruna sinn og hlutverk. Þeir ferðast víða í von um að finna leið til Nástrandar og stöðva uppgang Níðhöggsveldisins. Á sama tíma leiðir veiðigyðjan föruneyti í hættuför yfir Eyðilöndin, þar sem gnýr í dauðum borgum, hvín í eyðiþorpum og óvættir og stigamenn eru á hverju strái. Seiðkonan og hausaveiðarinn Heiður er ekki öll þar sem hún er séð. Veröld manna og vætta er á barmi annarrar Ringulreiðar. Lokauppgjör er í uppsiglingu.
Emil Hjörvar Petersen er frumkvöðull á sviði furðusagna hér á landi. Hann leggur ríka áherslu á frásagnarlistina, en Saga eftirlifenda er sannfærandi og frumleg frásögn sem sver sig í ætt við borgarfantasíur, gufupönk og heimsendabókmenntir.
„Söguheimurinn er stórsniðugur og á Emil hrós skilið fyrir heimshönnunina [...] Líkt og forverinn nær hún hæstu hæðum á síðustu blaðsíðunum, sem eru hörkuspennandi.“
— Bjarni Ólafsson, Morgunblaðið
„Við mælum hiklaust með henni fyrir alla aðdáendur norrænna goðsagna, heimsenda- og/eða urban fantasía.“
— Starfsfólk Nexus, Nexus.is